Description
Rebekka Blöndal, söngkona, og Andrés Þór, gítarleikari, flytja fjölbreytta efnisskrá Í Djúpinu þann 26. febrúar. Á efnisskránni verða bæði þekktir jazzslagarar og frumsamin lög. Rebekka og Andrés hafa unnið saman um árabil og komið fram víða, bæði sem dúett og í stærri hljómsveitum og verkefnum. Rebekka Blöndal er ein fremsta jazz- og blússöngkona landsins og hefur á undanförnum árum vakið athygli sem söngkona og lagahöfundur. Andrés Þór hefur verið áberandi í íslensku jazzsenunni og starfað ötullega með sínu eigin tríói og kvartett, auk þess að leika með mörgum af fremstu jazzlistamönnum landsins. Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 vorið 2026.
Participants
- RBRebekka Blöndal
- AÞAndrés Þór